Ferill 2. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 764 — 2. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við breytingartillögu á þingskjali 742 [Virðisaukaskattur o.fl.].
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Við 11. gr.
a. A-liður orðist svo: Ákvæði a–d-, f–h- og j–l-liðar 1. gr., 7. gr., 11. gr. og 12. gr. öðlast gildi 1. janúar 2016.
b. E-liður orðist svo: Ákvæði 4.–6. gr. og 9.–10. gr. öðlast gildi 1. janúar 2015 og gilda um sölu og afhendingu gjaldskyldrar vöru sem á sér stað eftir 1. janúar 2015. Breytt og brottfelld ákvæði gilda þó áfram um sölu og afhendingu gjaldskyldrar vöru sem á sér stað fyrir 1. janúar 2015.